Emil Örn Þórðarson

17.04.2006 02:48:47 / emmi1

Já það er MINN sirkus! :D

Jamm ég er buinn að fá mer prófíl á minnsirkus.is nuna og allt voðalega flott, með mp3 spilara og læti mahr !!!


Aaaanyways hérna er slóðin á bloggið mitt þar og prófílinn

Prófíll : http://emmi1.minnsirkus.is

Blogg: http://emmi1.minnsirkus.is/blogg

Jæja.. BiNGó og allir að skoða Minnsirkus.is !!!!


Emmi Out !!8|

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 02:36:35 / emmi1

Rip Petti !

Fyrr í dag þá frétti ég af hvarfi stóra bróður gamals skólafélaga mins úr kópavogi vegna þess að fólk hverfur jafnan bara ekki.

Pétur Benediktsson fannst látinn í bíl sínum við Flúðir núna í dag eftir að hafa verið týndur í 1 dag. Ég þekkti hann persónulega ekki vel en ég sá hann oft og ég samhryggist fjölskyldu hans og vandamönnum innilega við þennan hræðilega missi.

Eftir því sem ég best veit, var hann góður drengur í íþróttum, vinsæll, góður söngvari og örugglega fínasti gaur.

Ekki var sagt að hann hefði verið myrtur eða þetta hafi verið slys þannig að ég álykta að hann hafi framið sjálfsmorð sem mér finnst ótrúlega skrítið að svona maður hefði gert þetta.


Hér er leitarauglýsingin sem ég fékk senda.
----------------

Ungur maður úr Kópavogi sem margir HK-ingar kannast við, Pétur Benediktsson,
sem hefur þjálfað mikið í yngri flokkum Breiðabliks síðustu ár og er þar
þjálfari í 5. og 6. flokki karla í fótboltanum, er týndur.
Lýst hefur verið eftir honum og bifreið hans, sem er Toyota Corolla,
ljósgrá, 2001 módel, UI 581.

Lögregla og björgunarsveitir eru við leit um allt höfuðborgarsvæðið og
víðar. Sá sem hefur einhverja hugmynd um ferðir Péturs frá því á hádegi í
gær, mánudag, er beðinn um að hafa strax samband við lögreglu.

Aðstandendur Péturs hafa óskað eftir allri þeirri hjálp sem möguleg er.

Meðfylgjandi er þriggja ára gömul mynd af Pétri frá því hann var leikmaður í
2. flokki HK.

petur.jpg
----------------
Lifi minning Petta.

Kv: Emmi


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 15:18:49 / emmi1

Villta tryllta djamm !!!

Á laugardaginn var afmælið hans Óla haldið í sumarbústað rett fyrir utan akureyri.
Hann bauð sem flestum og keypti sjálfur 75 lítra af bjór liðinu þannig að það var frítt áfengi:P

En það var bara byrjunin á kvöldinu, það voru sirka 30 manns þarna í smá bústaði og aldrei hef ég séð aðra eins drykkju á liði.

En það sem gerði þetta svona helviti vilt var hvernig kvöldið endaði hehe

3 stólar voru brotnir og hurð líka.

Ónefndur aðilli fór upp á sjúkrahús í "meintu" flogaveikiskasti en var einnig drykkjudauður

3 keyrðu ölvaðir 2 voru teknir af löggunni, einn slapp.

2 misstu prófið sitt auk þess að þurfa að borga sirka 100 þúsund í sekt. :S

Og löggan kom 4 sinnum.


ooog það var gersamlega allt annað í rusti þarna þegar við vöknuðum. Bjór út um allt gólf, sígarettustubbar allstaðar, græjurnar eitthvað bilaðar, aska allstaðar, æla og blóð sumstaðar, og endalaust af glerbrotum líka, Enda tók líka ekki stuttan tíma að þrífa þetta allt.

En við gerðum það og já þetta var bara heljarinnar partí :D
Herna er mynd af ónefndum aðilla í sjúkrahúsfötum hehe :P
Kv: Emmi :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 15:20:36 / emmi1

Sumarbústaðardjamm WEEE!!!

Hann Óli kallinn átti tvíugsafmæli um seinustu helgi en hélt ekki upp á það þá þannig að í kvöld Laugardaginn 25 mars verður heljarinnar djamm á okkur lauganemum. Afhverju?
Því kjellinn leigði sumarbústað og keypti heljarinnar byrgðir af áfengi auk þess að maður á sitt sjálfur svona smotterí.

Óli er þessi í bláa bolnum með svipinn :P


Já svo er ég genginn í klúbb skallanna. Það gerðist um daginn. Jebb, rakaði af mer allt hárið upp á flippið. Svo var mer lika boðið í partí til Sonju frænku í kvöld á ak en ég veit ekki hvort ég geti mætt út af afmælinu en eg reyni að mæta smá því Bústaðurinn er rétt hjá Ak.

Annars var skóli í dag út af páskafríinu, annars þyrftum við að mæta hingað eftir páskafrí og vera í 2 daga og svo komin helgi en út af því það er þannig þá tókum við miðvikudaginn bara þennan laugardag og svo held ég fimmtudag næsta þá þurfm við ekkert að mæta í skólann og græðum þessa helgi líka sem er bara gott mál:)

17 daga páskafrí ójá hehe.

Ég hef nú voðalega ´litið annað að segja í bili en bara bæ :P

Talandi um alvöru djammara, ÖSS!!

kv:Emmi


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 08:38:43 / emmi1

Prison Brake og Árekstur

        Já, ég var að lenda í árekstri í gær. Vegna þessa gríðalega snjó og þykku snjókommu í gær og í dag var svo lélegt skyggni og ótrúlega hált að ég vitleysingurinn tók ekki mark á því og náði ekki að beygja inn á Laugasel heldur fór ég upp á hól í staðinn (lauganemar fatta þetta) Það losnaði einhver svona pakkning undan bílnum svona pappír, plast eitthvað. Ég veit ekki alveg hvað það er en bíllinn gengur annars vel.


                           
Annars var ég að horfa á 14 þátt Prison Brake í gær líka og dísús kræst spennandi shit. Það á víst alveg að fara að drepa gaurinn og það er buið að laga stólinn. Hvað í ósköpunum getur gerst nuna. Á bara að drepa saklausan mann? Ég get ekki beðið eftir næsta þætti úff :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 08:55:02 / emmi1

Klósettkennsla

...

                                  ..Óóóó svo maður á ekki að standa á klósettinu                      


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 21:05:11 / emmi1

Ljóð

Ég var að að finna gömlu ljóðin min og ætla að deila þeim með ykkur sem lesa þessa síðu:)

---------------------------------------------------------------------------
Myrkur

Tárin renna niður og hvarmar brenna
í næturhimninum situr mædd stúlka
bakvið skjá himinninn grætur
          
  Saknarðu mín
  Hugsarðu til himinns
  Ekkert gerist
  Um sót svarta mædda og
  Sorglega nótt

---------------------------------------------------------------------------
Rauður stóll
          
Ég er rauður stóll sem allir sitja á,
Ég er rauður því ég er slitinn
Ég er rauður stóll barinn og laminn
Ég er rauður stóll, samviskubitinn   
---------------------------------------------------------------------------
Rugl


Ekki fór ég á gerðarsafn
Ekki skoðaði ég myndir
Engin verk og ekkert rusl
Ég fór í holu svo þú ei mig findir.

---------------------------------------------------------------------------
10


Engar raddir, engin gleði ekkert boð
ekkert meira af þessu undurfagra
fljóðið yfirgefur, skilur eftir sárum í
ó vei ó vei.  ekki bregðast mér núna
því ég þarf að fara tíu mínútur í

---------------------------------------------------------------------------
Önnur saga


Áður var gleði, áður var von
nú er það farið þú skildir mig eftir
lofaðir tima, sem brátt rennur út
Eins og vatnið í augum mínum
Rennur stríðum straumum
En bráðum þarf ég að fara
eins og fyrr 10 mínútum í
ég kveð þig með tár í augum
set á mig stút og flýg.

---------------------------------------------------------------------------
Dís

Snerting eins og silki ofin úr umhyggju
ung saumakona situr á stokki
blíða brosið, hárið hrokkið
Langt niður í gólf andlitið sekkur
sorgmædd mey grætur sáran
Hann er farinn, lífið fjarar út
líkt og hún, báran.

ekki mikið meira en loft
milli eyrna sem sjávarskeljar
barmur mikil og barnagóð
sjaldan er til jafnt
undurfagurt fljóð.
 
---------------------------------------------------------------------------
Hugflækja

Öngþveiti sálarinnar er..
eins og ljós sem aldrei slokknar
Vindur sem aldrei blæs eða tár á glugga
rennur niður eins og hann sé að gráta
Stórum tárum, yfir bíla og þjóð
hugsandi um undurfagurt fljóð
hlustar á sjóinn sundla,bárur geysast
einama maður leysir festar
róir út á haf til að gleyma
 
---------------------------------------------------------------------------
Birtan

Lífsorka hennar umhverfis jörðina
Bindur hann Þrældómi í
Með lokkandi fegurð,
Hún Dregur eftir sig hjörðina
Augun tindra eins og gimsteinn
Lítið tár fellur, rigningin fellur
Sólin er farin, engin er lengur
Birtan.   

---------------------------------------------------------------------------
Hjartalæknir

Þú ert hjartalæknir
Eldglóandi rauða þin glóir fyrir sárin
Sviður fyrst en hverfur svo
betra er þú tekur samt tárin
sem renna stríðum straumum
niður brennandi hvarma, mína
einhvernvegin finnst mér nú
að heimsendir væri þér að týna
---------------------------------------------------------------------------

Hvaða ljóð er flottast ?

hehe.gifhehe.gifhehe.gifhehe.gifhehe.gifhehe.gifhehe.gifhehe.gif


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 13:13:38 / emmi1

Helgin..

Helgin hjá mer var ansi brösótt en tjah þetta sleppur svosem..

Föstudagur:  Við fórum nokkur saman á snjókrossmót hjá mývatni eða öllu heldur í einhverju fjalli þarna.. það sagði mer það engin að ég þyrfti að rallýast á einhverjum stórhættulegum vegi upp eitthvað fjall með blautri drullu á og skemmtilegheit áður en ég lagði af stað en fokkit.. Við fórum þangað og kagginn minn dreif þetta hehe :P en það var eftir að við fórum vitlausan veg og vegurinn endaði svo bara einhverstaðar lengst upp á fjalli því það var buið ða snjóa svona meters hæð af snjó á veginn og engin var að hafa fyrir því að moka.

Já við fórum semsagt á þetta mót (þegar það var búið, við vorum dáldið lengi á leiðinni) en það voru einhverjir gaurar þarna að leika sér ennþa í fjallinu og vá þetta er ekkert smá flott allt þarna. Enda voru allir sem voru að keppa drulluríkir, hvernig ætti maður annars að eiga efni á svona hobbý-i. Og vá bílarnir sem voru þarna voru vægast sagt flottir.. Ég var á lang minnsta bílnum þarna hehe.

Svo fórum við í Jarðböðin á mývatni að tjilla og djöfull var það gott. Jarðböðin eru eins og gamla Bláa Lónið var nema það er blátt ekki hvítt.

Eftir það var farið á djammið á Akureyri og voðalega skemmtilegt var að ég var með driver og allt og ætlaði að detta eitthvað í það en neiii ég átti engan pening... sem er voðalega skrítið því að ég fékk 3000 kall og eyddi 800 + 1000 + 570 sem gera 2370 held ég eða eitthvað en ég ætti að eiga nóg pening fyrir einum bjór á 350 kall en neiii það var ekki nóg.. ég skil þetta bankakerfi ekki lengur.

Laugardagur: Já þá ætlaði ég ekkert að fara á djammið og vera bara slakur en ég var dreginn á akureyri aftur.. surprise?  Allavega, ég var þá driver fyrir eitthvað fólk og eins og ég er heppinn með engan pening og ekkert skilríki sem sýnir að ég er eldri en 20 þurfti e´g að vera bara á runtinum eitthvað því oddvitinn var með tónleika sem kostaði 1000 kall á sem ég bara átti (og á reyndar ennþá) ekki. Annars fórum ég og Siggi þá bara til Sigvalda eftir rúnt með vinkonu Sigga sem heitir Sigga :P hehe og já við fórum til Sigvalda að éta kalda pizzu og horfa á Ripleys Believe it or not. Voðalega skemmtilegt hehe en þetta var samt ágætt. Sigvaldi er massafinn gaur:P

Sunnudagur: Sofandi ZzzZZzZZzzZZzzZzz  (vaknaði klukkan 7 um kvöldið einum tima eftir lokun á kvöldmat Jibbí.. )

hehe skemmtileg helgi eh ?

jæja fólk segið ykkar skoðun á bara einhverju mer er sama :P

 gella ?

ammadjamma.jpg                  eða GELLA ?  :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 11:19:37 / emmi1

Hey þu ógisslega töff..

..ég er að tala við þig :D


anyways.  Jæja ég var að spá í þessu í smá tima að loksins fara að blogga aftur og viti menn ég er að því veiii....

Það er ansi mikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast en ég nenni ekki að segja frá því nema því nýjasta.


um daginn þá var þvílíkt gaman þá var vatnsstríð milli vistanna hérna á laugum. Það byrjaði um miðnætti því að þá fór allt rafmagn af og er það ákveðin hefð herna að fara í vatnsstríð þegar það er rafmagnslaust. 120 manna vatnsstríð... ekki amalegt það:)

Svo var bíókvöld í gær og afmælissæmundur (ég nenni ekki að útskýra hvað það er nema það er bara kvöldkaffi með ís og gotteríi)

Já ég keypti mer líka kagga um daginn. Toyota Corolla 96  með svaðalegum græjum.

6 Hátalarar : 320 rms wött

og 600 w. magnari

en í bílnum var 1300 w keila, þéttir og 2 aðrir magnarar... og er ég þá með snúrur og alles til að setja í bílinn.. flottheit :P

Svo er held ég voðalega lítið að segja í bili nema ég bara get ekki sett inn myndir á helvitis bloggið hvað er málið !!!!!!!!

kv:Emmi


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 14:49:46 / emmi1

Ný síða

Heil og Sæl

þ.e.a.s. ef einhver les þessa síðu ennþá hehe.

Ég er kominn með nýja bloggsíðu

php.internet.is/emmi1 

Hún er nu samt ekki aaalveg komin upp en hun er alveg að verða tilbuin og það verður allt gott og blessað með það


Loksins losnar maður við þessar HELVITIS auglýsingar hérna a blog.central. ..
eg hata þetta helvitis kerfi !!!


Allavega ný síða.. tékk it át !

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 08:46:31 / emmi1

Hæfileikakeppni

Shit, Grímur þu ert fífl !!!!

Ég er að fara að taka þátt í einhverri hæfileikakeppni herna nuna og ég á víst að spila frumsamið og syngja, ehm... ég syngja ?  éééég veit nu ekki um það *hóst* :$

Já annars er ég aftur í nátturufræðitima herna, pælið í því, seinustu 3 bloggin min voru skrifuð í Náttúrufræði tíma, merkilegt nokk segi ég :P

En já ég er eiginlega orðinn skíthræddur við þessa keppni því það er ekki létt að sitja og spila og syngja frumsamið fyrir framan e-ð lið úfff......hvað var ég að láta hafa mig útí :S


kv:emmi stress

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 09:50:40 / emmi1

Leiðindi í náttúrufræði

....10 Kafli - Jarðskorpan

"
Barátta útrænu og innrænu aflanna veldur því að allt efni er í stöðugrihringrás sem tryggir m.a. viðhalda lífsins um ókamnar aldir og ármilllllllllllLEIÐINDI!!!"

Ja nátturufræðin er alveg afsakaplega skemmtileg og indæl, not !  (btw ég er í nátturufræði nuna)

Ég er svona nett ekki í stuði til að vera að rekja upp allt sem ég gerði síðan ég bloggaði seinast þannig ég ætla að segja þer hvað eg gerði í gær, sem var alveg ofurhýrt hehe.

Jói Spýta, Haukur, Guðrún, María, Sigurdís (Stuna) og Ég vorum í gær í mínu herbergi að horfa á  What a Girl Wants og The Iceprincess sem var alveg frábært :D

Ég og Jói grétum ofaní hvorn annan og hlógum dátt að misförum ýmissa stelpnutáta sem skemmtu sér leikandi vel í þessu Disney rugli en stelpurnar í þessum myndum eru flottar, ójá þær eru sko flottar.  Ég held að ég verði alveg frábær listskautari því það er svo töff.

Nú bráðum ætlum við að reyna að redda okkur fleiri svona myndum eins og Herbie Fully Loaded sem er víst alveg frábær og örugglega fleiri svona útúrhýrar stelpumyndir, tíhíhíhíh :$

 Já svo var farið á ball líka um daginn, Hlíðarball á Ákureyri sem var auglýst sem flöskuball en svo var bara leitað á manni við innkomu fjandinn hafi það, en ég var að keyra þannig ég slapp vel :D en annað var að því að við vorum á einhverju fjandans 16+ balli þar sem voru fullt af einhverjum bévítans smákrökkum urðu þvílík slagsmál milli Lauganema og einhverja allhýra 10 bekkinga frá akureyri örugglega útúr-dópað lið líka.   

Voru eeeendalaust að böggast í vinkonu minni þarna og já löggan kom og læti, við rústuðum þeim sko í þesusm slagsmálum og ég var kýldur líka, mjög gaman hehe:P

Já svo daginn eftir það var farið á mjólkurdrykkju á Húsavík, þar sem mikil mjólkin var drukkin á Love Guru ballinu, alltaf gaman að hitta Brósa Gúru af og til;) og hann hélt fyrir okkur sem vorum þanra saman bara einkaball því það mættu voðalega fáir víst, aumingja kjellinn en það var samt alveg geðveikt gaman, örugglega út af þessari miklu mjólkurdrykkju okkar :lol:

Jæja hef ekki miki meira að segja í bili þannig að..

Pís át jó pípól

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 13:38:01 / emmi1

Helvitis Ræningjar :@

Já fjandans ræningjar, eg var rændur um helgina, úrinu mínu var stolið !!! :'(

Ég fór í sumarbústað með nokkru laugaliði og gisti þar um helgina í góðu glensi að djúsa og djamma eins og okkur laugabúum er einum lagið.

Þegar átti að fara í heitapottinn þá tók ég úrið af mer til þess að það hmyndi ekki skemmast og lét það frá mer inni á baðherberginu og síðan þegar ég kom aftur til að þurka mer og svona þá man ég eftir að hafa tekið í úrið mitt og síðan man ég ekkert hvað ég gerði næst og úrið mitt er nuna týnt eða stolið ég held samt frekar að því hafi verið stolið því það voru alveg hellingur af liði þarna sem ég þekkti ekki neitt.

Einnig voru 25 þúsund krónum stolið frá einum gæja þarna inn á baðherberginu á sama kvöldi og voru gerð mikil læti út af því, leitað á fólki og mikið öskrað og vesen.

Síðan gerðist dáldið rugl sem eg skil ekki ennþá, ég fékk á mig eitthvað fáránlegt viðurnefni og sagan á bakvið það stenst engin rök því þetta er e-ð sem gerðist aldrei. Ég man allavega ekkert eftir því en það er ekki hægt að tala við sumt fólk þannig að ég verð bara að sætta mig við þetta rugl.

Jæja ég er nuna í náttúrufræði og verð að halda áfram ða fylgjast með þessari grútleiðinlegu mynd.

Bæjó

» 8 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 14:05:05 / emmi1

kreisíness in the breinhás :P

Vá það er langt síðan ég bloggaði herna síðast, úff það er búið að gerast mikið, svosem mörgæsir tóku loksins yfir Grænland og ég fór í heimavistarskólann á laugum. Ég er nuna í sögutíma og sit hliðin á einum mongolíta sem er að leika sér með blý úr blýpennanum sínum, nei bara að gantast :P

Annars er ég buinn að vera herna í sirka mánuð nuna og það er bara mjög fínt, farið nokkrum sinnum á djammið og það er allt gott með það, Ég gisti hjá sonju frænku og henni Klöru Fanndísi litlu mús og rosafjör á Akureyri.

ÉG er kominn í badminton eins og argasti hommi og það er bara fjör að fíflast með einhverja asnalega flugu og of langan spaða en það er bara frábær og fínt.

Það er buið að vera nokkuð kalt undanfarið en akkúrat nuna er frekar heitt og sól skín í heiði.

Ég er byrjaður að kenna henni Heiðu sem er með henni Alexöndru í herbergi (Alexandra er kölluð Kópavogur því hún kemur þaðan)  á gítar og það er alltaf rosa fjör.

tjaaaaaaa...... ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa meira þannig að ég segi bara bæ og sjáumst þangað til einhver manar mig til að blogga næst.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2005 20:21:20 / emmi1

Dagur 3 i DK

Jææja ég ætlaði að blogga um gærdaginn í gær en var bara allt of þreyttur til að gera e-ð í því og er ég næstum því jafn þreyttur nuna en ég ætla að pína mig til þess að skrifa niður smá blogg :)

Nú í gær þá fórum ég, Harpa Hlín og Matthías í dýragarðinn og sáum þar alveg allskonar frábærlega skemmtileg dýr, s.s syngjandi fimleikaapa (það var alveg brilliant) :D, Krókódíla, risa fiðrildi, simpansa, snáka, tarantúlur, gírafa, antilópu, skógarbjörn, úlfa, Mörgæsir, fíla, fiska, úlfalda, froska, tígrisdýr, ljón, Nashyrning, strúta, kengúru, buffalóa og fullt fullt fullt fleiri, man bara ekki alveg í augnablikinu :)

Já svo fórum við á strikið og í H&M ;) sem er aalveg frááábær búð, geggjaðar vörur á nánast engu verði, ég keypti mér þar, Flauels Jakka, skyrtu, belti, Gallabuxur, leðurarmband og trefil á 6500 krónur íslenskar !!!!!

Já svo fórum við heim og bara upp í rúm að sofa :)
-----------


Nú Dagurinn í dag var aðeins öðruvísi, við vöknuðum herna og fengum okkur að borða, síðan var förinni haldið út í matvörubúðina og þar var ekkert voðalega gaman, bara verslað og síðan farið með allt heim, díses hvað var erfitt að bera alla pokana upp í íbúð en já svo var ákveðið eftir smá tíma að fara bara í tívolíið því á morgun förum við til Svíþjóðar að heimsækja e-ð lið og svo á mánudaginn líklegast förum við aftur í tívolíið, en já við fórum þarna og fengum okkur dagpassa um 4 leitið og fórum í nokkur tæki, m.a. Djöfulinn, sem er rússíbani sem fór í endalausar lykkjur og læti og svona, já þetta er rosalega flottur staður nema pirrandi að það eru fleiri matsölustaðir þarna en tæki hehe, alveg fáránlegt :S

Já svo komum við bara heim nuna um hálf 11-leitið  og erum að éta kex, osta, jarða,vín, kirsu, hind og blómber og til að sötra því niður er það danski bjórinn :D

jæja verð að fara að éta og horfa á sjónvarpið :)


Næsta blogg verður um Svíþjóðarferðina :)

kv: Ferðalangurinn

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4